Dineout | Skilmálar gjafabréfa
Skilmálar Dineout gjafabréfa.
Skilmálar Dineout gjafabréfa.
Skilmálar þessir gilda um DineOut gjafabréf, sem gefin eru út af DineOut ehf., kt. 460217-0910, og þau má nýta sem greiðslumáta hjá þeim samstarfsaðilum sem tilgreindir eru á heimasíðu DineOut á hverjum tíma. DineOut gjafabréf eru sérstaklega merkt DineOut, sjá nánar á dineout.is/giftcards.
DineOut gjafabréf gilda í tvö (2) ár frá útgáfudegi. Þegar tvö (2) ár eru liðin frá útgáfudegi fellur gjafabréfið sjálfkrafa úr gildi án frekari tilkynningar.
DineOut býður ekki upp á að gildistími sé framlengdur, endurnýjaður eða að útrunnin gjafabréf séu endurvirkjuð. Handhafar DineOut gjafabréfa eru því hvattir til að nýta gjafabréfin innan gildistíma þeirra.
DineOut gjafabréf eru gefin út til handhafa. Eftir að greiðsla hefur borist eru gjafabréfin afhent með tölvupósti á það netfang sem tilgreint hefur verið í kaupferlinu. Kaupandi ber ábyrgð á því að tilgreina rétt netfang. Gjafabréf berast þá í PDF sniði, sem hægt er að prenta út eða hlaða niður í rafrænt veski í snjallsíma (e. wallet).
Til þess að nýta DineOut gjafabréf verður handhafi gjafabréfsins að framvísa því gagnvart samstarfsaðila DineOut sem tilgreindur er á lista DineOut á þeim tíma sem gjafabréfinu er framvísað.
Listi yfir samstarfsaðila er breytilegur frá einum tíma til annars og því mikilvægt að handhafi gjafabréfsins fylgist vel með listanum, sem er aðgengilegur á dineout.is/is/giftcards/dineout. DineOut ábyrgist ekki að allir sömu samstarfsaðilar og tilgreindir voru þegar gjafabréf var keypt, taki við gjafabréfum DineOut út gildistíma viðkomandi gjafabréfs.
Ekki er unnt að nota gjafabréfið sem greiðslumáta hjá neinum samstarfsaðila DineOut eftir að gildistíma þess lýkur.
DineOut gjafabréf eru hvorki endurgreiðanleg að hluta eða í heild, né innleysanleg í reiðufé. Framangreint gildir óháð því hvort gjafabréfið hafi verið fullnýtt innan gildistíma þess eða ekki.
DineOut gjafabréf eru gefin út til handhafa og er samstarfsaðilum DineOut heimilt að taka við greiðslu í formi gjafabréfsins frá þeim sem framvísar því hverju sinni. Það er því á ábyrgð handhafa gjafabréfsins að tryggja örugga varðveislu þess.
Skipti DineOut gjafabréf um hendur öðlast nýr handhafi ekki betri rétt gagnvart DineOut eða samstarfsaðilum DineOut en fyrri handhafi átti samkvæmt gjafabréfinu þegar yfirfærslan átti sér stað.
Hvers kyns endursala á gjafabréfum frá DineOut í atvinnuskyni er óheimil án samþykkis DineOut.
DineOut ber ekki ábyrgð á tjóni viðskiptavina eða þriðju aðila sem hlýst af þjófnaði gjafabréfa eða hvers konar óheimilli ráðstöfun eða notkun gjafabréfa sem greiðslumáta eftir útgáfu þeirra.
Skilmálar þessir gilda ekki um gjafabréf sem ekki eru gefin út af DineOut.
Í gegnum markaðstorg á vefsíðu DineOut bjóða einstaka fyrirtæki til sölu gjafabréf í sínu nafni og taka sjálf við greiðslu fyrir þau gjafabréf en nýta hugbúnað DineOut til þess, sem kemur fram sem tækniþjónustuveitandi gagnvart viðkomandi fyrirtæki.
Fyrirtækin sjálf eru útgefendur slíkra gjafabréfa, ekki DineOut. Þar af leiðandi ber DineOut enga ábyrgð á slíkum gjafabréfum og enginn samningur kemst á milli DineOut og kaupenda eða handhafa slíkra gjafabréfa.
Um slík gjafabréf gilda þeir skilmálar sem útgefandi viðkomandi gjafabréfs hefur ákveðið og er kaupendum eða handhöfum slíkra gjafabréfa bent á að beina kröfum eða fyrirspurnum vegna slíkra gjafabréfa að útgefendum þeirra.
Til þess að taka af allan vafa, ber DineOut ekki undir nokkrum kringumstæðum ábyrgð á því ef útgefandi gjafabréfs verður gjaldþrota, hættir starfsemi eða verður af einhverjum ástæðum ófær um að standa við skuldbindingar sínar.
Dineout ehf. áskilur sér rétt til þess að gera einhliða breytingar á skilmálum þessum. Sú útgáfa af skilmálum þessum gildir sem aðgengileg er á heimasíðu DineOut hverju sinni.