Dineout | Skilmálar
Notkunarskilmálar Dineout.
Notkunarskilmálar Dineout.
Dineout ehf., kt. 460217-0910, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík (hér eftir ”Dineout”) rekur stafrænt markaðstorg sem gerir notendum kleift að bóka borð á veitingastöðum, panta mat, kaupa rafræn gjafabréf og nýta afslætti eða önnur tilboð. Þjónusta Dineout felst eingöngu í því að reka stafrænt markaðstorg og tengja notendur við sjálfstætt starfandi veitingastaði sem hafa skráð sig á markaðstorgið.
Með því að nýta þjónustu Dineout, þar á meðal að bóka, panta, kaupa eða nýta tilboð, samþykkir þú þessa skilmála og viðurkennir að Dineout sé eingöngu rekstraraðili markaðstorgsins. Dineout ber enga ábyrgð á þjónustu, gæðum eða framkvæmd þess sem veitingastaðir bjóða, né öðrum þáttum í viðskiptum milli notenda og viðkomandi veitingastaðar.
Ef þú ert ekki samþykk/ur þessum bókunarskilmálum, eða öðrum viðeigandi skjölum og þeim takmörkum sem kynnt eru í tengslum við notkun markaðstorgsins, er þér óheimilt að nota Dineout markaðstorgið.
Þegar þú bókar eða pantar í gegnum markaðstorg Dineout, stofnast beint samningssamband milli þín og þess veitingastaðar sem valinn er. Dineout er ekki aðili að því samningssambandi og ber ekki ábyrgð á framkvæmd eða efndum þess samkomulags.
Veitingastaðurinn ber m.a. fulla ábyrgð á eftirfarandi atriðum:
Gjafabréf sem eru í boði í gegnum markaðstorg Dineout eru gefin út af viðkomandi veitingastað. Sama á við um afslætti og tilboð, þau eru veitt á ábyrgð og forræði þess veitingastaðar sem stendur að tilboðinu.
Dineout ber enga ábyrgð á gildistíma, efndum eða nýtingu slíkra gjafabréfa eða afslátta. Ef veitingastaður lokar, verður gjaldþrota eða veitir ekki að öðrum ástæðum þjónustuna, ber Dineout enga ábyrgð á endurgreiðslu, bótum eða úrbótum.
Dineout starfar eingöngu sem stafrænn milliliður og veitir markaðstorg sem tengir notendur við sjálfstætt starfandi þjónustuaðila og seljendur. Þar sem Dineout er einungis milliliður í viðskiptum milli notenda og samstarfsaðila, og kemur hvorki að viðskiptunum sjálfum né greiðslum til þjónustuaðila eða seljenda, ber félagið enga ábyrgð á eftirfarandi:
Dineout starfar eingöngu sem tæknilegur vettvangur og ábyrgist ekki gæði, öryggi eða lögmæti þeirrar þjónustu sem veitt er af veitingastöðum eða öðru sem leiðir af samskiptum eða samningum milli þín og veitingastaðarins. Verði þú var við ólögmæta þjónustu á markaðstorgi Dineout skal tilkynna slíkt með upplýsingum um þjónustuveitenda og vöruna svo hægt sé að grípa til viðeigandi ráðstafana.
Við bókun, pöntun eða nýtingu á þjónustu í gegnum markaðstorg Dineout er Dineout og þeim veitingastað sem þú bókar hjá heimilt að nota tölvupóstfang þitt í markaðslegum tilgangi, svo sem til að senda tilboð eða kynningarefni.
Dineout og veitingastöðum sem þú hefur bókað hjá í gegnum markaðstorg Dineout er heimilt að senda þjónustutengdar áminningar eða tilkynningar í gegnum tölvupóst.
Með því að haka við sérstakan reit við bókun gefur þú samþykki fyrir eftirfarandi:
Þú getur afskráð þig frá þessum tilkynningum hvenær sem er og án kostnaðar. Til að afskrá þig frá tölvupóstsendingum er hægt að smella á afskráningarhlekk neðst í hverjum tölvupósti. Til að afskrá þig frá SMS-skilaboðum er hægt að fylgja leiðbeiningum sem gefnar eru í skilaboðunum. Einnig er alltaf hægt að hafa beint samband við Dineout eða viðkomandi veitingastað til að óska eftir afskráningu af póstlista eða SMS-skilaboða.
Markaðstorg Dineout og veitingastaðurinn bera hvor um sig ábyrgð á því að öll markaðssetning og samskipti við þig séu í samræmi við gildandi lög og reglur, einkum lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og lög nr. 70/2022 um fjarskipti.
Upplýsingar sem skráðar eru í gegnum Dineout markaðstorgið eru unnar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlög“). Öll vinnsla persónuupplýsinga á grundvelli skilmála þessara, þar með talin söfnun, skráning, notkun og miðlun, fer fram í samræmi við ákvæði laganna.
Í tengslum við veitingu þjónustunnar er Dineout nauðsynlegt að vinna með upplýsingar tengdar notendum þjónustunnar sem teljast til persónuupplýsinga í skilningi persónuverndarlaga, s.s. upplýsingar um nafn, kennitölu, heimilisfang, samskiptaupplýsingar og reikningsupplýsingar. Kemur Dineout fram sem ábyrgðaraðili í skilningi persónuverndarlaga í tengslum við framangreinda vinnslu.
Viðkomandi veitingastaður kemur fram sem sjálfstæður ábyrgðaraðili varðandi þá vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram í tengslum við bókun á þjónustu viðkomandi veitingastaðar í gegnum Dineout markaðstorgið. Um þá vinnslu gilda viðeigandi skilmálar viðkomandi veitingastaðar.
Um vinnslu Dineout á persónuupplýsingum sem ábyrgðaraðili er að öðru leyti fjallað í Persónuverndarstefnu Dineout, sem aðgengileg er á dineout.is.
Markaðstorg Dineout er hýst og rekið af Dineout. Aðgengi að markaðstorginu getur tímabundið verið takmarkað eða það óaðgengilegt vegna nauðsynlegs viðhalds, kerfisuppfærslna eða ófyrirséðra atvika. Dineout leitast við að tryggja hámarks aðgengi og stöðugan rekstur markaðstorgsins og gerir sitt besta til að lágmarka allar truflanir. Tilkynningar um fyrirhugað viðhald og uppfærslur verða sendar notendum með fyrirvara þegar það á við. Dineout ber ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem kann að hljótast af tímabundnu óaðgengi eða truflunum á markaðstorginu.
Dineout áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er. Slíkar breytingar taka gildi um leið og þær eru birtar. Nýjustu skilmálar eru ávallt aðgengilegir á dineout.is og gilda þeir um alla notkun þjónustunnar frá birtingu þeirra. Með áframhaldandi notkun á þjónustunni eða aðgangi að síðunni samþykkir þú uppfærða skilmála.
Með notkun á markaðstorgi Dineout samþykkir þú að halda Dineout, eigendum félagsins, stjórnendum og starfsmönnum skaðlausum gagnvart öllum kröfum, ábyrgð, tjóni, kostnaði og útgjöldum, sem kunna að leiða af eða tengjast notkun þinni á markaðstorginu.
Verði einhver ákvæði þessara skilmála talin ólögleg, ógild eða óframkvæmanleg samkvæmt gildandi lögum, skal það ekki hafa áhrif á gildi og framkvæmd annarra ákvæða.
Ef einhver ákvæði eða réttindi sem Dineout nýtur samkvæmt íslenskum lögum eða reglum hafa ekki verið sérstaklega tilgreind í þessum skilmálum, telst það hvorki afsal þeirra réttinda né takmörkun á réttarstöðu þeirra. Öll slík réttindi og vernd gilda áfram óskert.
Með því að nota markaðstorgið samþykkir þú þessa skilmála og allar aðgerðir sem kunna að leiða af þeim, þar á meðal afgreiðslu á deilumálum eða kröfum sem kunna að rísa vegna eða í tengslum við notkun markaðstorgsins. Öll slík mál skulu sæta íslenskum lögum og verða rekin fyrir íslenskum dómstólum.
Dineout áskilur sér jafnframt rétt til að höfða mál vegna brota á þessum skilmálum fyrir dómstólum í þeirri lögsögu þar sem brotamaður er staðsettur.